Aukabúnaður umfram staðalbúnað
Innbyggð hleðslustýring 7,4kW, málmlitur
Viltu breyta bíl í pöntun?
Ef þú vilt breyta nýjum bíl nákvæmlega að þínum smekk t.d. lit, innréttingu eða búnaði og þú finnur ekki þannig bíl í Vefsýningarsalnum þá er hægt að breyta bílum sem eru í pöntun með aðstoð söluráðgjafa. Þú sendir okkur pöntun / fyrirspurn með því að smella á rauða hnappinn „HAFÐU SAMBAND“ og lætur okkur vita hverju þú vilt breyta. Söluráðgjafi verður í sambandi við þig um hæl með nánari útfærslu.
Verð- og búnaðarlista getur þú skoðað með því að smella hér
Staðalbúnaður í þessum bíl
Hér fyrir neðan er helsti búnaður í þessum bíl.
Innrétting
Framsæti hæðarstillanleg og upphitanleg, þrjú stök fellanleg aftursæti á sleðum – geta færst 15 cm hvert í sínu lagi, leðurklætt stýrishjól, armpúði með geymsluhólfi milli framsæta
Stjórntæki
Rafdrifin handbremsa, stafrænt mælaborð með stillanlegu viðmóti, fjarstýrð samlæsing – 2 fjarstýringar, rafdrifnar rúður að framan og aftan, fjölaðgerðavelti- og aðdráttarstýri, hraðastillir með hraðatakmarkara, rafdrifnir upphitaðir hliðarspeglar, tölvustýrð miðstöð með loftkælingu – frjókorna- og kolefnissía, loftrás í miðjuröð að aftan, lyklalaust aðgengi, raffellanlegir speglar með LED stefnuljósum og LED aðkomuljósum, innbyggð hleðslustýring 3,7 kW
Hljómtæki og samskiptakerfi
MyCitroënapp – t.d til að virkja eða stjórna hleðslu og virkja forhitun, GPS Vegaleiðsögn 3D – Wifi - Citroën Connect, 8“ margmiðlunarskjár, útvarp, 6 hátalarar, Bluetooth snjallsímatenging, AUX og USB tengi, þráðlaus símhleðsla, Mirror Link, Apple Car Play og Android Auto snjallsímatenging
Öryggi
Bakkmyndavél – Visiopark 180°, nálægðarskynjarar að framan og aftan, Citroën þægindafjöðrun, sjálfvirk öryggishemlun, ökumannsvaki, vegskiltalesari, veglínustýring, öryggispúðar og loftpúðagardínur, innstigsljós í útispeglum, heimreiðarljós, beygjustýrð þokuljós í framstuðara, regnnemi í framrúðu og sjálfvirk dimming í baksýnisspegli
Utan
18“ álfelgur- 225/55 R18, skyggðar rúður að aftan, langbogar á toppi, grár litapakki í stuðara, á hliðarvörn og á langbogum
Helstu mál
Lengd: 4,5 m – Breidd m/speglum: 2,09 m - Hæð: 1,695 m - Veghæð: 23 cm – Farangursrými: 460-600 lítrar – Eigin þyngd: 1.430 kg – Dráttargeta: 1.300 kg (eftirvagn með hemlum)
7 ára ábyrgð á Citroën bíl og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu
Brimborg býður nú Citroën bíla með víðtækri 7 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg.