Viltu breyta bíl í pöntun?
Ef þú vilt breyta nýjum bíl nákvæmlega að þínum smekk t.d. lit, innréttingu eða búnaði og þú finnur ekki þannig bíl í Vefsýningarsalnum þá er hægt að breyta bílum sem eru í pöntun með aðstoð söluráðgjafa. Þú sendir okkur pöntun / fyrirspurn með því að smella á rauða hnappinn „HAFÐU SAMBAND“ og lætur okkur vita hverju þú vilt breyta. Söluráðgjafi verður í sambandi við þig um hæl með nánari útfærslu.
Verð- og búnaðarlista getur þú skoðað með því að smella hér
Staðalbúnaður í þessum bíl
Hér fyrir neðan er helsti búnaður í þessum bíl.
Innrétting
Tau áklæði Wild Grey Evo, Framsæti hæðarstillanleg og upphitanleg, þrjú stök fellanleg aftursæti á sleðum – geta færst 15 cm hvert í sínu lagi, loftkæling, leðurklætt stýrishjól, armpúði með geymsluhólfi milli framsæta, skyggðar rúður að aftan
Stjórntæki
Stafrænt mælaborð með stillanlegu viðmóti, rafdrifin handbremsa, lyklalaust aðgengi, fjarstýrð samlæsing – 2 fjarstýringar, rafdrifnar rúður að framan og aftan, fjölaðgerðavelti- og aðdráttarstýri, hraðastillir með hraðatakmarkara, rafdrifnir upphitaðir hliðarspeglar, tölvustýrð miðstöð með loftkælingu – frjókorna- og kolefnissía, loftrás í miðjuröð, raffellanlegir speglar með LED stefnuljósum og LED aðkomuljósum
Hljómtæki og samskiptakerfi
8“ margmiðlunarskjár, útvarp, 6 hátalarar, Bluetooth snjallsímatenging, AUX og USB tengi, Mirror Link, GPS Vegaleiðsögukerfi 3D, Apple Car Play og Android Auto snjallsímatenging
Öryggi
Citroën þægindafjöðrun, framdrif með ASR spólvörn og ESP skrikstýringu, sjálfvirk öryggishemlun, ökumannsvaki, vegskiltalesari, veglínuskynjun með hjálparátaki, bakkmyndavél, innstigsljós í útispeglum, heimreiðarljós, beygjustýrð þokuljós í framstuðara, regnnemi í framrúðu og sjálfvirk dimming á baksýnisspegli
Utan
18“ Álfelgur- 235/55 R18
Helstu mál
Lengd: 4,5 m – Breidd m/speglum: 2,09 m - Hæð: 1,689 m - Veghæð: 23 cm – Farangursrými: 580-720 lítrar – Eigin þyngd: 1.549 kg – Dráttargeta: 1.350 kg (eftirvagn með hemlum)
7 ára ábyrgð á Citroën bíl
Brimborg býður nú Citroën bíla með víðtækri 7 ára ábyrgð. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg.