Aukabúnaður umfram staðalbúnað
Málmlitur, Alcantara Ambiance Urban Black áklæði, hiti í framsætum, Techno Pakki 1 (Handfrjáls opnun á skotti, 360° myndavélakerfi með bílastæðaaðstoð (Park Assist). Fjórar HD myndavélar gefa þér 360° heildarsýn af ökutækinu).
Viltu breyta bíl í pöntun?
Ef þú vilt breyta nýjum bíl nákvæmlega að þínum smekk t.d. lit, innréttingu eða búnaði og þú finnur ekki þannig bíl í Vefsýningarsalnum þá er hægt að breyta bílum sem eru í pöntun með aðstoð söluráðgjafa. Þú sendir okkur pöntun / fyrirspurn og lætur okkur vita hverju þú vilt breyta. Söluráðgjafi verður í sambandi við þig um hæl með nánari útfærslu.
Verð- og búnaðarlista getur þú skoðað með því að smella hér
Staðalbúnaður í þessum bíl
Hér fyrir neðan er helsti búnaður í þessum bíl.
Innrétting
Svart Ambiance Urban tauáklæði, framsæti hæðarstillanleg, bílstjórasæti með mjóhryggsstillingu, þrjú stök fellanleg aftursæti á sleðum, leðurklætt stýrishjól, armpúði milli framsæta, skyggðar rúður að aftan, sjálfvirk dimming á baksýnisspegli.
Stjórntæki
Rafdrifin handbremsa, lyklalaust aðgengi og start, fjarstýrð samlæsing, rafdrifnar rúður að framan og aftan, fjölaðgerðavelti- og aðdráttarstýri, rafdrifnir og raffellanlegir upphitaðir hliðarspeglar, tölvustýrð miðstöð með loftkælingu,
Hljómtæki og samskiptakerfi
10“ margmiðlunarskjár, útvarp, 6 hátalarar, Bluetooth snjallsímatenging, AUX og USB tengi, Mirror Link, Apple Car Play og Android Auto snjallsímatenging, GPS vegaleiðsögukerfi.
Öryggi
Ökumannsvaki, brekkuaðstoð, umferðaskiltalesari, veglínustýring, bakkmyndavél, regnnemi fyrir rúðuþurrku að framan, nálægðarskynjarar að framan og aftan, fjarlægðarstillanlegur hraðastillir, hraðatakmarkari, blindapunktsviðvörun, snjallhemlun og viðvörun vegna hættu á árekstri, SOS neyðarhringing við alvarlegan árekstur og neyðarrofi í lofti, öryggispúðar og loftpúðagardínur.
Utan
18“ álfelgur Pulsar - 225/55 R18. Litapakki Dark Chrome í framstuðara og á hliðum, svartar speglakápur, svart þak, LED stefnuljós, LED dagljósabúnaður, þokuljós í framstuðara með beygjustýringu, samlit hurðarhandföng.
Helstu mál
Lengd: 4,5 m – Breidd m/speglum: 2,1 m - Hæð: 1,695 m - Veghæð: 23 cm – Farangursrými: 580-720 lítrar – Eigin þyngd: 1.567-1.675 kg – Dráttargeta: 1.250 kg (eftirvagn með hemlum)
7 ára ábyrgð á Citroën bíl
Brimborg býður nú Citroën bíla með víðtækri 7 ára ábyrgð. Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg.