Aukabúnaður umfram staðalbúnað
Hiti í framsætum (ekki miðjusæti), 11 kW hleðslustýring (3 fasa), bakkmyndavél og GPS leiðsögukerfi, og Comfort & Safety Pack sem inniheldur SOS neyðarhringing + hnappur (hringir t.d. sjálfvirkt í 112 í alvarlegum árekstri og gefur sjálfvirkt staðsetningu), forhitun stillanleg með MyOpel appi og hægt að finna bílinn með MyOpel app.
Viltu breyta bíl í pöntun?
Ef þú vilt breyta nýjum bíl nákvæmlega að þínum smekk t.d. lit, innréttingu eða búnaði og þú finnur ekki þannig bíl í Vefsýningarsalnum þá er hægt að breyta bílum sem eru í pöntun með aðstoð söluráðgjafa. Þú sendir okkur pöntun / fyrirspurn og lætur okkur vita hverju þú vilt breyta. Söluráðgjafi verður í sambandi við þig um hæl með nánari útfærslu.
Verð- og búnaðarlista getur þú skoðað með því að smella hér
Hér fyrir neðan er helsti búnaður í þessum bíl.
Innrétting
9 sæti – bílstjórasæti + tveggja manna bekkur í fremstu röð, 2/3 – 1/3 sæti í miðju- og öftustu röð, bílstjórasæti hækkanlegt með armpúða, plastklæðning á gólfum, grátt tauáklæði.
Stjórntæki
Rafdrifnar rúður framan, rafdrifnir og raffellanlegir speglar, rafdrifin handbremsa, loftkæling (AC), fjarstýrð samlæsing.
Hljómtæki og samskiptakerfi
7“ upplýsingaskjár í mælaborði, útvarp, 8 hátalarar, USB tengi, AUX tengi, 12V tengi, Bluetooth handfrjáls tengibúnaður fyrir síma, Apple CarPlay og Android Auto.
Öryggi
Hleri að aftan með hita í rúðu og rúðuþurrku, regnnemi fyrir rúðuþurrkur, öryggisloftpúðar að framan og hliðum framan, Isofix barnabílstólafestingar í öllum aftursætum, stálhlíf undir rafvél, þokuljós í framstuðara, loftþrýstingsskynjari á dekk, nálægðarskynjarar að aftan.
Utan
17“ stálfelgur 225/55 R17, rennihurðar á báðum hliðum, samlitir stuðarar (L3 samlitaðar að hluta), hliðarlistar og hurðarhandföng, svartar speglakápur, LED dagljós í framstuðara.
Helstu mál
Farangursrými: 980-1500 ltr – Lengd: 4,959 m – Breidd: 1,920 m - Breidd m/speglum: 2,204 m – Hæð: 1,895 m – Veghæð: 19 cm – Dráttargeta: 1000 kg (eftirvagn með hemlum) – Eigin þyngd: 2.183 kg.
7 ára ábyrgð á Opel bíl og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu
Brimborg býður nú Opel bíla með víðtækri 7 ára ábyrgð (140.000 km) og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu (160.000 km). Ábyrgðin er aðeins í boði á bílum keyptum af Brimborg.