Fjármögnun

Bílafjármögnun býðst fyrir nýja og notaða bíla og eru nokkrir kostir í boði. Algengustu leiðirnar eru bílalán eða bílasamningur en einnig eru margir sem nýta sér kortalán til bílakaupa og nota t.d. raðgreiðslur við kaup á bílum. Bílafjármögnun fyrir notaða bíla tekur mið af aldri bílsins og ræðst lengd lánstíma og jafnvel útborgunarhlutfall af aldrinum. Því yngri sem bíllinn er því lengri getur lánstíminn orðið og útborgunarhlutfall lægra. Bílalán fyrir nýja bíla fást hjá öllum fjármögnunarfélögum, bönkum og jafnvel tryggingarfélögum en ráðgjafar Brimborgar veita þér allar upplýsingar. Gert er ráð fyrir útborgun sem oftast þarf að vera 25% að lágmarki en hún má auðvitað vera hærri. Eftirstöðvarnar er yfirleitt hægt að fá að láni til allt að 84 mánaða eða 7 ára. 

Bílafjármögnun og útborgun með uppítökubíl

Bílafjármögnun krefst yfirleitt útborgunar og lausnin getur verið bílaskipti eða uppítaka á notuðum bíl sem kemur í stað útborgunar. Litið er á uppítökubílinn sem útborgun og oft dugar það til að mismuninn sé hægt að brúa með bílafjármögnun.

Komduhringdu eða sendu fyrirspurn og fáðu nánari upplýsingar um bílafjármögnun við kaup á notuðum bíl hjá Brimborg.